Landsvirkjum kaupir hlut í Þeistareykjum ehf.

Höfuðstöðvar Landsvirkjunar.
Höfuðstöðvar Landsvirkjunar. mbl.is/Ómar

Landsvirkjun og Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Landsvirkjunar á 0,087% hlut félagsins í Þeistareykjum ehf. Einnig hefur verið gengið frá samkomulagi við Orkuveitu Húsavíkur ohf. um kaup á 3,2% hlut hennar í félaginu. Fyrir hlutina greiddi Landsvirkjun samanlagt rúmlega 201,2 milljónir króna.

Eftir kaupin fer Landsvirkjun með allt hlutafé (100%) í Þeistareykjum ehf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þeistareykir ehf. hafa frá stofnun félagsins árið 1999 staðið að borunum og rannsóknum til hagnýtingar á orku úr jörðinni Þeistareykjum í Þingeyjarsveit. Rannsóknum og undirbúningi að jarðhitavirkjun hefur miðað vel á síðustu árum.

Á svæðinu er gert ráð fyrir allt að 200 MW jarðhitavirkjun samkvæmt fyrirliggjandi mati á umhverfisáhrifum. Gert er ráð fyrir að virkjað verði í áföngum en þegar hefur verið aflað gufu fyrir einni vélasamstæðu. Verkhönnun er lokið og samið hefur verið við verkfræðistofurnar Mannvit og Verkís um útboðshönnun, útboðsgagnagerð og lokahönnun en ekki hefur verið tekin ákvörðun um tímasetningu á framkvæmdum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK