Ráðinn yfirmaður framleiðslu Latabæjar

Björn Þórir Sigurðsson.
Björn Þórir Sigurðsson.

Björn Þórir Sigurðsson hefur verið ráðinn yfirmaður framleiðslu hjá Latabæ. Hann mun stýra sjónvarpsframleiðslu á öllu nýju efni Latabæjar, þ.m.t seríu þrjú sem áætlað er að fari í sýningu í 180 löndum og verður lykil barnaefni Turner samsteypunnar næstu árin. Björn Þórir starfar náið með forstjóra félagsins, Magnúsi Scheving og stjórn þess. Hann hefur frá árinu 2008 stýrt markaðs- og tekjumálum fyrir Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins og mbl.is.

Áður hefur Björn Þórir m.a. starfað sem dagskrár- og síðar sjónvarpsstjóri Skjás Eins, dagskrárstjóri Stöðvar 2 og framkvæmdastjóri PoppTíví. Björn Þórir hefur einnig gegnt stjórnarstörfum fyrir fjölmörg fyrirtæki og samtök hér á landi. Björn Þórir er með B.A gráðu í Visual Communications frá American Intercontinental Unviersity í Los Angeles, Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK