Liv í stjórn Wow

Liv Bergþórsdóttir
Liv Bergþórsdóttir

Liv Bergþórsdóttir hefur tekið sæti í stjórn WOW air.

Hún er framkvæmdastjóri fjarskiptafyrirtækisins Nova og hefur gegnt því starfi undanfarin 5 ár. Liv var áður framkvæmdastjóri farsímafyrirtækisins Sko en þar áður gegndi hún starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðassviðs hjá Og Vodafone og þar áður hjá Tali.

„Það er gaman að fá tækifæri til að taka þátt í uppbygginu nýs félags og nú í flugrekstri. WOW air ætlar sér stóra hluti og ég hlakka til að vinna með þeim að því verkefni,“ segir  Liv í fréttatilkynningu.

WOW air mun fljúga til 13 áfangastaða í Evrópu frá og með byrjun júní. Stjórnarformaður WOW air er Skúli Mogensen.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK