Langtímaatvinnuleysi minnkar

stækka

mbl.is/Ómar Óskarsson

Á fyrsta ársfjórðungi 2012 höfðu um 2.800 manns verið atvinnulausir í eitt ár eða lengur eða 1,6% alls vinnuaflsins. Á fyrsta ársfjórðungi 2011 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 3.800 manns eða 2,2% vinnuaflsins.

Af þeim sem voru atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi voru að jafnaði 2.200 manns búnir að vera atvinnulausir í 1-2 mánuði eða 1,2% vinnuaflsins. Til samanburðar höfðu 2.400 manns verið atvinnulausir í 1-2 mánuði á fyrsta ársfjórðungi 2011 eða 1,4% atvinnulausra.

Á fyrsta ársfjórðungi 2012 voru að meðaltali 12.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,2% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 7,8% hjá körlum og 6,5% hjá konum. Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2012 var 163.500 manns eða 73,2% af mannfjölda. Hlutfall starfandi karla var 75,7% og starfandi kvenna 70,6%, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

Þúsund færri án atvinnu

Af vef Hagstofu Íslands

Þegar á heildina er litið fækkaði atvinnulausum um 1.000 frá fyrsta ársfjórðungi 2011. Körlum fækkaði þó umtalsvert meira eða um 1.800 á sama tíma og atvinnulausum konum fjölgaði um 800. Starfandi fjölgaði á þessu tímabili um 1.300. Starfandi körlum fjölgaði um 3.300 en starfandi konum hins vegar fækkaði um 2.000.

Á fyrsta ársfjórðungi 2012 voru að jafnaði 176.200 manns á vinnumarkaði og fjölgaði um 0,2% frá sama tíma ári áður eða um 300 manns. Jafngildir þetta 78,8% atvinnuþátttöku. Fjöldi fólks utan vinnumarkaðar var 47.300, sem er aukning um 2,4% frá fyrra ári eða um 1.100 manns. Atvinnuþátttaka karla var 82,1% og kvenna 75,4%.

Á fyrsta ársfjórðungi 2011 voru alls 175.900 á vinnumarkaði eða 79,2% atvinnuþátttaka og utan vinnumarkaðar voru 46,200. Atvinnuþátttaka karla var 83,3% og kvenna 76,1%.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Svæði
mbl sjónvarp
Vöxturinn nægir ekki

Vöxturinn nægir ekki myndskeið

21.5. Væntingarnar eru ekkert rosalega miklar og við virðumst svolítið vera að hjakka í sama farinu, hóflegur vöxtur, en hann dugar ekki til að koma atvinnustiginu á flug og búa til innistæðuna sem þarf að vera fyrir næstu kjarasamninga. Þetta segir Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Meira »
Fleiri myndskeið

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Gagnaveitur

Erlendar viðskiptafréttir