Höskuldur kjörinn nýr formaður stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja

Höskuldur Ólafsson
Höskuldur Ólafsson

Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, var í dag kjörinn formaður stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) á aðalfundi þeirra sem fór fram í dag. Höskuldur tekur við af Birnu Einarsdóttir, bankastjóra Íslandsbanka, sem hefur gegnt stöðu stjórnarformanns undanfarin tvö ár. Frá þessu er greint á heimasíðu SFF. 

Ný stjórn Samtaka fjármálafyrirtækja var kosin á aðalfundinum. Í henni sitja auk Höskuldar og Birnu Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, Pétur Einarsson, forstjóri Straums, Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, Sigurður Atli Jónsson,  forstjóri MP banka, Sigurður Viðarsson, forstjóri TM og Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK