Hagvöxtur drifinn áfram af einkaneyslu

Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var neikvætt á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. stækka

Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var neikvætt á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samtök atvinnulífsins segja að þó að það séu ánægjuleg tíðindi að hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi hafi verið 4,5% þá sé það áhyggjuefni að hann sé fyrst og fremst drifinn áfram af einkaneyslu. Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar hafi verið neikvætt á ársfjórðungnum.

Hagstofan birti í morgun tölur um hagvöxt á fyrsta ársfjórðungi, en hún var 4,5%. Tölurnar benda til að fjárfestingar í heild hafi aukist um rúm 9% á þessu 12 mánaða tímabili og fjárfestingar atvinnuveganna um 13%. Fjárfestingar í heild námu 12,5% af VLF og fjárfestingar atvinnuveganna 8,7% og hækkuðu bæði hlutföllin um tæpt 1%.

„Að baki hagvextinum stendur hins vegar aukin einkaneysla að mestu leyti. Einkaneyslan jókst um 4,2% sl. 12 mánuði og skýrir, ásamt 1% aukningu samneyslu, tæpa tvo þriðju hluta hagvaxtarins á þessu tímabili. Auknar fjárfestingarnar standa að baki rúmum fjórðungi hagvaxtarins.

Áhyggjuefnin snúa sem fyrr að utanríkisviðskiptunum. Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var neikvætt á ársfjórðungnum og hefur verið óverulegt á undanförnum misserum.  Með öðrum orðum hefur raunaukning  útflutnings og innflutnings haldist í hendur á sl. 12 mánuðum. Þegar við bætist neikvæð þróun viðskiptakjara þá fer vöruskiptaafgangur minnkandi en hann nam 23 ma.kr. (8,7% af VLF) á 1. ársfjórðungi 2012 samanborið við 26 ma. kr. (10,2%) fyrir ári síðan. Tölur um þjónustujöfnuð valda vonbrigðum í ljósi mikillar aukningar ferðamanna en þjónustuútflutningur jókst töluvert minna  en þjónustuinnflutningur,“ segir í frétt frá SA.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Svæði
mbl sjónvarp
Ekki fráleitt að fá 2 milljónir gesta

Ekki fráleitt að fá 2 milljónir gesta myndskeið

17.5. „Aukningin hefur verið gríðarleg, 15-20% og ef fram heldur sem horfir er ekkert sem bendir til annars en að við lok þessa áratugar, 2020, gætum við verið farin að slaga nálægt tveggja milljóna markinu eins og forsetinn spáði.“ Þetta segir Edward H. Huijbens, sem telur hugmyndina ekki fráleita. Meira »
Fleiri myndskeið

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Gagnaveitur

Erlendar viðskiptafréttir