Konungsfjölskyldan kostar 6,3 milljarða

Breska konungsfjölskyldan á krýingarafmæli drottningarinnar.
Breska konungsfjölskyldan á krýingarafmæli drottningarinnar. AFP

Rekstur á bresku konungsfjölskyldunni kostaði 6,35 milljarða (32,3 milljónir sterlingspunda) á síðasta ári. Inni í þessum tölum er viðhald á eignum fjölskyldunnar, ferðakostnaður, launakostnaður starfsfólks, fjölmiðlastofu og annar tilfallandi kostnaður. Fjármálastjóri fjölskyldunnar, sir Alan Reid, er ánægður með þessar tölur, en þær sýna að kostnaðurinn hefur dregist saman um 25% síðustu 4 árin á raungildi. Fjárhagsbúskapur fjölskyldunnar er því á pari við það sem hafði verið gert ráð fyrir í áætlunum. 

Þess skal þó getið að inni í þessum tölum er ekki kostnaður vegna 60 ára krýningarafmælis drottningarinnar né siglingar drottningarinnar niður Thames sem var í síðasta mánuði, en rekstrarárið nær frá apríl til maí og því gætu það orðið stórir liðir þá.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK