Tilbúin að gefa eftir hluta fullveldis

Angela Merkel og Mario Monti
Angela Merkel og Mario Monti AFP

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu, telur að þörf sé fyrir miðstýrða hagstjórn innan evrusvæðisins ef komi til útgáfu evruskuldabréfa. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur hingað til talað fyrir þessu skrefi ef það eigi að samþykkja útgáfu sameiginlegra skuldabréfa og ekki viljað taka ábyrgð á skuldum annarra ríkja án þessa að hafa einhverskonar völd til að koma í veg fyrir óábyrga hagstjórn.

Í samtali við þýska blaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung sagði Monti að „án almennilegrar [hag]stjórnar væri óábyrgt að sliga önnur lönd með  eigin skuldum“ og bætti við að „Þýskaland og Ítalía væru á sömu línu í þessu máli og væru tilbúin að gefa eftir af fullveldi sínu“

Í síðustu viku var mikið umtal um evruskuldabréfin vegna aðstoðar við Spán og Kýpur og virðist sem Ítalía sé að gefa aðeins eftir til að nálgast kröfur Þýskalands í málinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK