Skiptir máli að hvíla féð

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

„Það skiptir máli að féð sé hvílt og það getur tekið allt að hálfan mánuð“ segir Sigmundur Hreiðarsson, vinnslustjóri kjötvinnslu Norðlenska á Húsavík. Mikið af fé í nálægum sveitum kemur til slátrunar í stöðinni og gerir hann ráð fyrir að um 80 þúsundum verði slátrað á þessu hausti. Í viðbót við óvissu vegna óveðursins um fjölda sláturfjár hefur rafmagnsleysi verið að plaga nærsveitir, en Sigmundur segir að sláturhúsið hafi sloppið við það og náð að halda sér á áætlun hingað til.

Það er því ljóst að óveðrið mun hafa víðtækari áhrif en bara á fjölda gripa sem koma í hús, því þetta getur eitthvað seinkað eða haldið aftur af slátrun. Sigmundur er þó vongóður um áframhaldið og segir að ef einhverjir hafi þurft að kunna að bjarga sér hingað til séu það bændur og að þeir muni áfram gera það í þetta skiptið. 

Hann segir að þegar björgun og smölun verði lokið á svæðunum sem verst urðu úti, á næstu tveimur vikunum, muni þó betur koma í ljós hvernig slátrun verði háttað og að þá verði að „spila þetta dag frá degi“. Eins og áður kom fram telur hann nauðsynlegt að féð fái nægjanlega hvíld áður en það komi til slátrunar. 

Hjá Fjallalambi á Kópaskeri olli rafmagnsleysi því að ekki var hægt að hefjast handa á miðvikudaginn eins og gert hafði verið ráð fyrir, en þar verður hafist handa á föstudaginn, en Björn Víkingur Björnsson framkvæmdastjóri segir að þá sé búið að lofa rafmagni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK