4,3 milljarða gjaldþrot BNT

Bjarni Benediktsson var stjórnarformaður BNT fram til 2008, en gjaldþrot …
Bjarni Benediktsson var stjórnarformaður BNT fram til 2008, en gjaldþrot félagsins nam 4,3 milljörðum. Kristinn Ingvarsson

Engar eignir fundust í búi EM 13 ehf. upp í 4,3 milljarða kröfur á hendur félaginu. Áður hét félagið BNT hf. og var aðaleigandi N1 hf. Í lögbirtingablaðinu kemur fram að EM 13 hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta 6. september á síðasta ári og að skiptum hafi verið lokið 15. janúar. 

Aðaleigandi BNT hf. var fjárfestingafélagið Máttur sem var í eigu Einars og Benedikts Sveinssona auk Karls og Steingríms Wernerssona. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var fram til 2008 stjórnarformaður BNT og sat í stjórn Máttar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK