Evrur að andvirði 5,8 milljarða króna keyptar

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ernir

Seðlabanki Íslands keypti í dag evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Alls bárust 68 tilboð að fjárhæð 41,3 milljónir evra og var tilboðum að fjárhæð 25,2 milljónum evra tekið.

Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. 

Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 231 kr. fyrir hverja evru. Alls bárust 30 tilboð að fjárhæð 9,3 ma.kr. og var tilboðum að fjárhæð 5,7 ma.kr. tekið.

Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK