Íslandsbanki hagnaðist um 23,4 milljarða á síðasta ári eftir skatta. Hagnaðurinn árið 2011 var 1,9 milljarðar, en þar gætti áhrifa vegna virðisrýrnunar á viðskiptavild í kjölfar yfirtöku Byrs sem olli einskiptiskostnaði uppá 17,9 milljarða króna.
Hagnaður bankans eftir skatta á fjórða ársfjórðungi var 7,2 milljarðar samanborið við 9,5 milljarða tap á fjórða ársfjórðungi 2011.
Hagnaður ársins eftir skatta af reglulegri starfsemi var 15,7 milljarðar, samanborið við 13,9 milljarða árið 2011.
Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 17,2%, samanborið við 1,5% árið 2011. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi var 11,6%, samanborið við 11,0% árið 2011.
Skattar og gjöld greidd ríkisstofnunum voru 9,3 milljarðar á árinu, samanborið við 2,0 milljarða á árið 2011.
Heildareignir við árslok námu 823 milljörðum, samanborið við 796 milljarða í árslok 2011.
Fram kemur í fréttatilkynningu frá bankanum að vaxtamunur var 3,9% á árinu, samanborið við 4,5% árið 2011.
Í tilkynningunni segir að frá stofnun bankans hafi um 20.900 einstaklingar og um 3.660 fyrirtæki fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum sem nema um 463 milljörðum króna.
Nettó tekjufærsla vegna endurmats lánasafnsins var 6,5 milljarðar árið 2012, samanborið við 1,3 milljarða gjaldfærslu á sama tímabili fyrir árið 2011.
Heildarinnlán við árslok námu 509 milljörðum, samanborið við 526 milljarða í árslok 2011. Eigið fé nam 148 milljörðum í árslok, sem er hækkun um 19,4% frá árslokum 2011. Eiginfjárhlutfall bankans var 25,5% í árslok 2012 samanborið við 22,6% í árslok 2011.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir í fréttatilkynningu, að sameining Íslandsbanka og Byrs hafi aukið markaðshlutdeild bankans verulega og lagt drög að tekju- og samlegðarárhrifum til framtíðar. Uppgjörið beri þess glögglega merki að grunnrekstur bankans sé enn að styrkjast, en yfir 75% af rekstrartekjum bankans koma frá vaxta- og þóknanatekjum.
„Við höfum náð miklum árangri við fjárhagslega endurskipulagningu. Stórum málum lauk á árinu og brátt sér fyrir endann á endurútreikningi ólöglegra gengistryggðra lána. Íslandsbanki féll frá þremur dómsmálum á árinu til að flýta endurútreikningi og endurreiknar nú 15.000 lán. Hlutfall lána í endurskipulagningu hefur því lækkað umtalsvert eða úr 22.6% í 13.7%. Jákvæðir úrskurðir ESA varðandi þær aðgerðir sem gripið var til 2008 hafa einnig dregið úr óvissu í rekstri bankans. Þessi atriði ásamt meira lífi á fjármálamarkaði gefur til að kynna að það séu að verða þáttaskil í rekstri bankans og starfsumhverfi okkar,“ segir Birna.