Hagvöxturinn 1,6% í fyrra

stækka

mbl.is/Ómar Óskarsson

Landsframleiðsla jókst að raungildi um 1,6% árið 2012 og er það annað árið í röð sem landsframleiðsla eykst, en hún jókst um 2,9% árið 2011 eftir mikinn samdrátt tvö ár þar áður.

Þjóðarútgjöld á árinu 2012 jukust nokkru meira en nam vexti landsframleiðslu, eða um 1,9%. Einkaneysla jókst um 2,7% og fjárfesting um 4,4% en samneysla dróst saman um 0,2%. Útflutningur jókst um 3,9% og innflutningur nokkru meira, eða um 4,8%. Þrátt fyrir þessa þróun varð verulegur afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum á árinu 2012, eða 108 milljarðar króna, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

Aukna fjárfestingu á síðasta ári má að miklu leyti rekja til innfluttra skipa og flugvéla en slík fjárfesting hefur lítil sem engin áhrif á landsframleiðslu ársins. Að frádreginni fjárfestingu í skipum og flugvélum dróst fjárfesting á síðasta ári saman um 4,7% og munar þar mestu um minni fjárfestingu í stóriðju- og orkuverum.

Hagvöxturinn 1,4% á fjórða ársfjórðungi

Landsframleiðsla á 4. ársfjórðungi 2012 jókst um 1,4% borið saman við 4. ársfjórðung 2011. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, saman um 2,6%. Einkaneysla jókst um 2,7% og samneysla um 0,5% en fjárfesting dróst saman um 23%. Útflutningur jókst um 1,8% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 5,6%.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 0,5% milli 3. og 4. ársfjórðungs 2012. Þar af mældist 1,5% aukning í einkaneyslu en þjóðarútgjöld drógust saman um 0,2% á ársfjórðungnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka
Svæði
mbl sjónvarp
Áskorandakeppni Crossfit Reykjavík

Áskorandakeppni Crossfit Reykjavík myndskeið

í fyrradag Monitor kynnir fyrsta þáttinn í áskorandakeppni Crossfit Reykjavík þar sem tuttugu manns hyggjast taka sig á svo um munar.  Meira »
Fleiri myndskeið

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Gagnaveitur

Erlendar viðskiptafréttir