Viðskipti
| Morgunblaðið
| 8.3.2013
| 5:30
| Uppfært
7:13
Kaupir eyjar fyrir börnin og konurnar
kjartan@mbl.is
Einn af auðugustu mönnum í heimi, emírinn af Katar, Hamad bin Khalifa al Thani, hefur fest kaup á sex grískum eyjum í Jónahafi. Kaupverðið er jafnvirði 1,4 milljarða króna.
Forsaga kaupanna er sú að emírinn heillaðist af eyjunum fyrir fjórum árum þegar hann var þar á ferð á risasnekkju sinni og kom á land á eyjunni Íþöku.
Bæjarstjórinn á Íþöku segir að emírinn hyggist reisa hallir fyrir sjálfan sig, börnin sín 24 og eiginkonurnar þrjár á eyjunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






