Reitir tapa 6,5 milljörðum
Reitir fasteignafélag skilaði rúmlega 6,5 milljarða tapi á síðasta ári, en matsbreyting fjárfestingareigna útskýrir stærstan hluta tapsins, eða 5,9 milljarða. Rekstrarhagnaður félagsins nam 5,7 milljörðum en fjármagnsgjöld námu um 7,3 milljörðum. Í ársreikningi félagsins segir að stjórnin telji virðismat eignasafnsins í árslok vera varfærið, en það leiði til þeirrar rekstrarniðurstöðu sem raun ber vitni.
Heildarvirði fjárfestingareigna félagsins nemur um 88,6 milljörðum og er eigið fé Reita tæpir 13 milljarðar, eða 14,2%. Í rekstraráætlunum ársins 2013 er gert ráð fyrir bættri rekstrarafkomu frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði er áætlaður tæpir 6 milljarðar króna og sjóðstreymi áætlað jákvætt.
Reitir áætluðu skráningu á markað í lok síðasta árs, en ekki varð af því. Í ársreikningnum segir að ástæðan hafi verið víðtæk skoðun á áhrifum hæstaréttardóma sem féllu í lok ársins 2012 vegna gengislána á Reiti og forvera þess. Þá hafa Reitir átt í viðræðum við erlendan lánveitanda félagsins um hugsanlega uppgreiðslu lánsins. Þær viðræður hafa tekið lengri tíma en ætlað var. Félagið stefnir á kauphallarskráningu á árinu 2013.
Nýtingarhlutfall fasteigna í útleigu nam 96%, en það er hækkun úr 94% í fyrra. Stærsti einstaki leigjandinn eru Hagar hf. og dótturfélög með um 20% af leigutekjum Reita.
Laun og önnur hlunnindi forstjórans, Guðjóns Auðunssonar, á árinu námu 30 milljónum og hækkuðu um 8 milljónir milli ára






