Ætlar í mál við FME

Ingólfur Guðmundsson telur FME hafa brotið gróflega á sér, þegar …
Ingólfur Guðmundsson telur FME hafa brotið gróflega á sér, þegar honum var einhliða vikið úr starfi haustið 2010. mbl.is/Kristinn

Ingólfur Guðmundsson hefur átt í nokkurs konar varnarbaráttu við Fjármálaeftirlitið í hartnær þrjú ár og telur sig hafa rétt hlut sinn að nokkru leyti fyrir dómi og umboðsmanni Alþingis.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Ingólfi í vil í janúar í fyrra og umboðsmaður Alþingis úrskurðaði sömuleiðis í máli hans í febrúar á þann veg að FME hefði gerst brotlegt gagnvart honum er honum var vikið úr starfi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga.

„Ég er í þeirri stöðu að hafa verið brennimerktur og einhliða rekinn úr starfi af FME. Ég hef orðið fyrir miklum fjárhagslegum skaða og málið hefur tekið mikið á alla fjölskylduna . . . Ég hef fengið meira en nóg af valdníðslu af hálfu FME. Þegar ekki einu sinni er beðist afsökunar eða boðnar fram bætur þegar valdi er misbeitt, þá er ég tilneyddur til að höfða skaðabótamál,“ segir Ingólfur m.a. í samtali í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK