Leita fjármögnunar á Magma skuldabréfi

OR seldi fagfjárfestasjóðs í rekstri Landsbréfa skuldabréf gefið út af …
OR seldi fagfjárfestasjóðs í rekstri Landsbréfa skuldabréf gefið út af Magma energy. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Eins og fram hefur komið í fréttum mbl.is hefur tilboði fagfjárfestasjóðs í rekstri Landsbréfa hf. um kaup á skuldabréfi sem gefið var út af Magma Energy Sweden A/B árið 2009 verið tekið af öllum eigendum OR. Skuldabréfið var upphaflega hluti greiðslu fyrir hlut OR í HS Orku. Í tilkynningu frá Landsbréfum segir að á bak við skuldabréfið standi veð í hlutabréfum í HS Orku. Kaupverðið er 8,6 milljarðar króna, en um forsendur að öðru leyti vísast til tilkynningar Orkuveitu Reykjavíkur til Kauphallarinnar 11. júlí.

Þá segir að Landsbréf settu fyrst fram tilboð í skuldabréfið þann 15. febrúar 2013 og hafa viðræður við OR staðið yfir síðan.

Tilboðið er gert með fyrirvara um fjármögnun á kaupunum. Nú þegar allir eigendur OR hafa samþykkt kauptilboðið hefst söluferli á fjármögnun skuldabréfsins. Á næstu vikum og mánuðum munu Landsbréf bjóða helstu viðskiptavinum sínum, sem einkum eru íslenskir stofnanafjárfestar og fagfjárfestar, að taka þátt í fjármögnun skuldabréfsins í gegnum fagfjárfestasjóð í rekstri Landsbréfa.

Í tilkynningunni er haft eftir Sigþóri Jónssyni, framkvæmdastjóri Landsbréfa að hann telji skuldabréfi spennandi kost. „Ég fagna því að kauptilboði Landsbréfa hafi verið tekið, en við teljum skuldabréfið spennandi fjárfestingakost.“

Landsbréf eru sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem annast rekstur verðbréfasjóða, fjárfestingasjóða og fagfjárfestasjóða. Félagið starfar sem rekstrarfélag samkvæmt starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og hefur einnig leyfi til eignastýringar. Eignir í stýringu hjá Landsbréfum eru um 100 milljarðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK