Kínverjar vilja kaupa Íslandsbanka

Fjárfestahópur frá Asíu, sem meðal annars samanstendur af kínverskum fjárfestum, hefur áhuga á að kaupa 95% hlut kröfuhafa Glitnis í Íslandsbanka.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins gæti kaupverðið numið um 115 milljörðum króna. Eftir því sem næst verður komist er ekki farið fram á það að fjárfestunum verði veittur „afsláttur“ á þeim gjaldeyri sem greitt yrði með við möguleg kaup á bankanum.

Heimildir Morgunblaðsins herma að forsætisráðherra og efnahags- og fjármálaráðherra hafi verið upplýstir um áhuga fjárfestahópsins. Slitastjórn Glitnis bíður nú viðbragða stjórnvalda þess efnis hvort slík sala gæti verið hluti af mögulegum nauðasamningi þrotabúsins, að því er fram kemur meðal annars um mál þetta í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK