Páll Rafnar sviðsstjóri félagsvísindasviðs

Páll Rafnar Þorsteinsson.
Páll Rafnar Þorsteinsson.

Páll Rafnar Þorsteinsson hefur verið ráðinn nýr sviðsstjóri félagsvísindasviðs Háskólans á Bifröst frá og með 1. janúar 2014. 

Páll lauk doktorsprófi í heimspeki frá Cambridge háskóla, hann hefur meistaragráðu í stjórnmálafræði frá London School of Economics og BA-gráðu í heimspeki og grísku frá Háskóla Íslands, segir í tilkynningu.

Páll hefur starfað hjá almannatengslafyrirtækinu KOM í Reykjavík og hefur sinnt ritstörfum fyrir hugveitu í Bretlandi. Auk þess að starfa sem sviðsstjóri mun Páll leiða verkefni á vegum Rannsóknarstofnunar atvinnulífsins – Bifröst sem fjallar um tengsl milli pólitísks stöðugleika og erlendra fjárfestinga.

Fráfarandi sviðsstjóri er Auður H. Ingólfsdóttir sem verið hefur í rannsóknarleyfi en Eyja Margrét Brynjarsdóttir hefur leyst hana af og mun gera það til áramóta eða þar til Páll tekur við.

Háskólinn á Bifröst býður Pál velkominn til starfa og þakkar þeim Auði og Eyju fyrir vel unnin störf við skólann. Auður mun halda áfram kennslu við skólann.

mbl.is
Svæði

Gagnaveitur

Erlendar viðskiptafréttir