Brynhildur framkvæmdastjóri Marinox

Brynhildur Ingvarsdóttir.
Brynhildur Ingvarsdóttir.

Brynhildur Ingvarsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Marinox ehf., framleiðanda UNA skincare-húðvörulínunnar.

Brynhildur lauk MA-prófi í fjölmiðlafræði frá Emerson College í Boston 2002 og BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1995. Hún gegndi síðast starfi markaðsstjóra EGF hjá Sif Cosmetics þar sem hún tók þátt í uppbyggingu fyrirtækisins og vörumerkjanna EGF og BIOEFFECT™. Brynhildur var áður sviðsstjóri miðlunarsviðs Þjóðminjasafns Íslands í aðdraganda uppbyggingar og enduropnunar safnsins 1. september 2004. Hún er einn af höfundum grunnsýningar safnsins og stýrði miðlunarsviðinu á fyrstu árunum eftir opnunina, segir í fréttatilkynningu.

Marinox ehf. er ungt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknum, þróun og framleiðslu á lífvirkum efnum úr sjávarþörungum og afurðum sem innihalda slík efni. Fyrsta vörulína fyrirtækisins, UNA skincare™ húðvörurnar, kom á markað fyrir rúmu ári.

Rannsóknar- og þróunarvinna vörulínunnar fór fram í náinni samvinnu við Matís, bæði í Reykjavík og á Sauðárkróki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK