Vilja risagróðurhús í Grindavík

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Hollenska fjárfestingafyrirtækið EsBro var með opinn kynningarfund í Grindavík í gær um fyrirhugað hátækni tómatagróðurhús vestur af Grindavík. Gróðurhúsið er 15 hektarar sem lætur nærri að vera 20 fótboltavellir að stærð. „Er hér um risa fjárfestingu að ræða eða nokkra milljarða króna,“ segir í frétt á vef Grindavíkurbæjar. Til stendur að framleiða tómata til útflutnings, aðallega til Bretlands.

Róbert Ragnarsson bæjarstjóri opnaði fundinn og fór yfir stöðu skipulagsmála. Starfsemin er í samræmi við aðalskipulag Grindavíkurbæjar, en deiliskipulagsvinna er fyrir höndum. Hollendingarnir hafa sótt um tæplega 28 hektara lóð.

Fram kom í máli fulltrúa EsBro Investment Group að fyrirtækið er skráð í Hollandi og hefur áður komið á fót sambærilegum verkefnum Þýskalandi og Úkraínu. Það sérhæfir sig í fjárfestingu í matvælaiðnaðinum og þá sérstaklega í gróðurhúsum.

Ástæða þess að fyrirtækið lítur til Íslands er græn og ódýr orka, hér er starfsfólk fyrir hendi en talið er að tómatagróðurhúsið veiti um 125 manns atvinnu. Lagði fulltrúi EsBro áherslu á að um spennandi störf væri að ræða í hátækni gróðurhúsum.

Grindavík varð fyrir valinu þar sem samgöngur eru góðar og gott aðgengi að orku, segir í frétt bæjarins um málið.

Deiliskipulagsvinna fer bráðlega í gang og vilja Hollendingarnir hefja framleiðslu næsta haust ef allt gengur upp. Í kynningu fyrirtækisins á umhverfisáhrifum gróðurhúsanna kom fram að með þeirri byggingutækni sem þeir ráða yfir muni þeim takast að skerma 95 til 99% ljósmengunar og hún sé því óveruleg. Þá verður ekki kveikt á ljósum í gróðurhúsum allan sólarhringinn því slökkt verður að meðaltali í 6 klukkutíma á hverjum sólarhring. Gert er ráð fyrir að vatn sé endurnýtt og því verði affall lítið sem ekkert frá gróðurhúsinu og það því sjálfbært hvað það varðar.

Líflegar umræður voru að loknum erindunum. Fyrst og fremst var það ljósmengun sem fundargestir spurðu um sem og nálægð við golfvöllinn. Hvatti fulltrúi EsBro Grindvíkinga að hafa samband við fyrirtækið með fyrirspurnir. Netfangið er info@esbro.org

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK