WOW með fyrsta flugrekstrarleyfið í 30 ár

Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air ásamt Birni Inga …
Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air ásamt Birni Inga Knútssyni framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs með flugrekstrarleyfið

Í dag tók WOW air formlega við flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu en um 30 ár eru liðin síðan flugrekstrarleyfi var veitt síðast til handa félagi sem stundar áætlunarflug til og frá Íslandi. Ekki er nema tæplega eitt og hálft ár síðan WOW fór sitt fyrsta flug, en á þeim tíma hefur það stækkað mikið og gert er ráð fyrir að farþegar í ár verði um 450 þúsund. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Afhending flugrekstrarleyfisins eru tímamót í flugsögu Íslands. Ég er stoltur af þessum áfanga sem er hornsteinn í áframhaldandi vexti flugfélagsins. En ég er fyrst og fremst þakklátur öllu því kraftmikla fólki sem starfar hjá WOW air og hefur gert WOW að veruleika. Einnig er ég þakklátur fyrir þær frábæru móttökur sem við höfum fengið frá íslensku þjóðinni frá fyrsta degi“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.

Meiri virðisauki fyrir íslenskt samfélag

Hermann Guðjónsson, forstjóri Samgöngustofu, segir að með leyfinu verði meiri virðisauki hérlendis. „Samgöngustofa lýsir ánægju sinni með að nýtt íslenskt flugfélag skuli nú hafa fengið heimild til flugreksturs. Því fylgja ákveðnar skyldur og ábyrgð en einnig virðisauki fyrir íslenskt samfélag í formi ýmissa starfa tengdum flugrekstrinum. Samgöngustofa óskar nýjum rekstraraðilum góðs gengis í starfseminni og vonast eftir góðu og gifturíku samstarfi,“ segir Hermann.

Starfsemi WOW air hefur tvöfaldast síðan síðastliðið sumar og frá með næsta mánuði mun fast- og lausráðið starfsfólk nema um 170 manns. Félagið auglýsti eftir flugmönnum fyrir hálfum mánuði og bárust um 270 umsóknir. WOW air hefur nú þegar ráðið 9 flugmenn og fleiri munu bætast í hópinn á næstu mánuðum. Nú munu flugmenn félagsins verða starfsmenn WOW air með komu flugrekstrarleyfisins.

Stefna á 700 þúsund farþega á næsta ári

Félagið hefur stækkað jafnt og þétt frá fyrsta flugi þess í maí 2012 en það ár flaug félagið með um 90 þúsund farþega, núna í ár verður farþegafjöldi um 450 þúsund og stefnt er að á næsta ári að félagið fljúgi með yfir 700 þúsund farþega. Vöxtur WOW air hefur verið mikill en fyrsta sumarið rak félagið tvær vélar en næsta sumar mun flugfélagið reka fimm vélar. Um er að ræða nýjustu þoturnar sem notaðar eru í áætlunarflugi til og frá Íslandi af íslensku flugfélagi. Nýju Airbus A320 vélarnar eru mun sparneytnari en eldri vélar og jafnframt menga þær umtalsvert minna.

WOW air hyggst fljúga til 17 áfangastaða bæði í Evrópu og Norður Ameríku frá næsta vori. 

Skúli Mogensen tekur á móti leyfinu frá Hermanni Guðjónssyni forstjóra …
Skúli Mogensen tekur á móti leyfinu frá Hermanni Guðjónssyni forstjóra Samgöngustofu.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK