Hagvöxtur mælist 3,1%

Hagvöxturinn er drifinn áfram af útflutningi
Hagvöxturinn er drifinn áfram af útflutningi Styrmir Kári

Landsframleiðsla á fyrstu níu mánuðum ársins 2013 jókst um 3,1% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2012. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, saman um 0,5%. Einkaneysla jókst um 1,3% og samneysla um 1,4%. Fjárfesting dróst hins vegar saman um 7,1%.

Útflutningur jókst um 4,2% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 1,9%. Hagvöxtur fyrstu níu mánuði ársins er því drifinn áfram af breytingum í utanríkisverslun.

Landsframleiðsla á 3. ársfjórðungi 2013, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 4,9% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 6,1% frá 2. ársfjórðungi 2013, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK