Metár hjá Icelandair

Metár var í fyrra hjá Icelandair í farþegaflutningum.
Metár var í fyrra hjá Icelandair í farþegaflutningum.

Í desember flutti Icelandair 141 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 18% fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 15% og sætanýting var 76,2% samanborið við 72,6% á sama tíma í fyrra. Farþegar í millilandaflugi félagsins hafa aldrei verið fleiri en á árinu 2013. Þeir voru alls 2.257.305 og fjölgaði um 12% frá árinu 2012.  Árleg aukning undanfarin ár hefur numið 12-18% og eru farþegar félagsins nú orðnir einni milljón fleiri en árið 2009. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.                                

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru tæp 20 þúsund í desember og fækkaði um 10% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 10% samanborið við desember 2012. Sætanýting nam 65.0% og lækkaði um 1,5 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 8% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 45,7% samanborið við 46,1% í desember í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK