Isavia harmar ákvörðun WOW

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Forstjóri Isavia harmar að WOW Air sjái sér ekki fært að efna til aukinnar samkeppni og nýta afgreiðslutíma sem félaginu voru úthlutaðir í samræmi við viðurkenndar aðferðir í starfsemi flugfélaga og flugvalla á alþjóðavísu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að Isavia kjósi ekki að eiga í deilum við viðskiptavini sína en bendir á að ekki er hægt að úthluta sama afgreiðslutíma tvisvar. Félagið hefur þegar ráðist í stækkun flugstöðvarmannvirkja á Keflavíkurflugvelli svo mæta megi aukinni eftirspurn. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi verði tekinn í notkun á næsta ári. „Misskilningur er að ríkið komi að fjármögnun framkvæmda á Keflavíkurflugvelli. Notendur greiða“ segir Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia, í fréttatilkynningunni

Samræmdar evrópskar reglur

Í tilkynningunni kemur fram að úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum fari eftir samræmdum evrópskum reglum sem lögfestar eru hérlendis. Óháður aðili annast úthlutun og samræmir afgreiðslutíma á upphafs- og endastöð hvers flugs. Isavia kemur ekki að úthlutun afgreiðslutíma og getur ekki haft afskipti af störfum samræmingarstjóra, enda er það óheimilt samkvæmt reglum.

17 flugfélög í samkeppni

Isavia annast rekstur og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar. Eitt af helstu markmiðum í starfi félagsins er að auka tíðni, og þar með samkeppni, í áætlunarflugi til og frá landinu. Til þess að ýta undir fjölgun flugleiða býður Isavia tímabundinn afslátt af lendingargjöldum samkvæmt sérsniðnu hvatakerfi. Starfsmenn félagsins hafa undanfarin ár fundað með fjölmörgum  flugfélögum til þess að kynna þjónustu flugvallarins og Ísland sem áfangastað.  Markaðsstarfs félagsins hefur m.a. skilað sér með þeim hætti að nú halda 17 flugfélög uppi áætlunarflugi til Íslands yfir sumarmánuðina og fimm til sex flugfélög allt árið. Til samanburðar voru fyrir 10 árum einungis sjö flugfélög með tímabundna áætlun og aðeins tvö með áætlun allt árið. Fullyrðingar um að Isavia stuðli ekki að samkeppni í áætlunarflugi eiga því ekki við rök að styðjast, segir í tilkynningunni.

Nægir afgreiðslutímar

Nægir afgreiðslutímar eru í boði á Keflavíkurflugvelli að mati Isavia, utan einnar og hálfrar klukkustundar að morgni og síðdegis. Fjöldi flugfélaga sem geta fengið úthlutað afgreiðslutíma á þessum tveimur háannatímum takmarkast af stærð flugstöðvarinnar og fjölda flugvélastæða við hana. Góður árangur hefur náðst í að auka nýtingu flugstöðvarinnar með dreifðri notkun. Frekari stækkun til aukinnar afkastagetu er mjög kostnaðarsöm, segir í tilkynningunni.

Samkeppnisákvæði í reglugerð um úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum veitir nýjum aðilum á tiltekinni flugleið forgang að helmingi nýrra og lausra afgreiðslutíma. WOW Air nýtti sér ekki þetta ákvæði.

Óeðlilegt inngrip Samkeppnisstofnunar

Isavia hefur áfrýjað ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að félaginu beri að hlutast til um störf óháðs samræmingarstjóra. Félagið telur ákvörðunina vera óeðlilegt inngrip í samræmdar EES-reglur og til þess fallin að skaðað samkeppni í flugi til og frá landinu og kunni að letja erlend flugfélög sökum þess að Samkeppniseftirlitið hygli flugfélögum á heimaflugvelli.

Frétt mbl.is: WOW hættir við flug til Stokkhólms

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK