Tap RÚV meira en gert var ráð fyrir

Ríkisútvarpið.
Ríkisútvarpið. mbl.is/Kristinn

Útlit er fyrir að tap af rekstri Ríkisútvarpsins (RÚV) á yfirstandandi rekstrarári verði umtalsvert meira en áætlanir stjórnenda félagsins gerðu ráð fyrir, jafnvel þótt að gripið hafi verið til umfangsmikilla niðurskurðaraðgerða á tímabilinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnar RÚV til Kauphallarinnar.

Niðurstaða uppfærðrar rekstraráætlunar, sem kynnt var á stjórnarfundi í dag, er stjórn RÚV mikil vonbrigði og hefur hún óskað eftir því að fram fari óháð úttekt á fjármálum þess. Stjórnin hefur jafnframt óskað eftir því við nýráðinn útvarpsstjóra, Magnús Geir Þórðarson, að hann fari yfir rekstraráætlanir með það að markmiði að reksturinn komist í jafnvægi sem fyrst.

Raunhæft að koma rekstrinum í jafnvægi

Telur stjórnin raunhæft að það muni takast og að framtíðarhorfur kalli ekki á nýjar niðurskurðaraðgerðir til viðbótar við þær sem þegar hefur verið ráðist í á rekstrarárinu, að því er segir í tilkynningunni.

Þar segir að nú sé gert ráð fyrir að tap af rekstri félagsins verði 305 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins og 357 milljónir króna á rekstrarárinu öllu.

Veruleg áhrif á eigið fé Ríkisútvarpsins

„Ljóst er að frávikið frá þeim áætlunum sem áður höfðu verið lagðar fram er umtalsvert og útlit er fyrir að tapið af rekstrinum muni hafa veruleg áhrif á eigið fé Ríkisútvarpsins, en það var við lok síðasta rekstrarárs 653 milljónir króna,“ segir í tilkynningunni.

Því sé ljóst að hlutfall eiginfjár Ríkisútvarpsins fari undir 8% mörkin sem skilgreind eru í lánasamningum sem það hefur gert. Í tilkynningunni er þó tekið fram að RÚV hafi upplýst viðskiptabanka sinn um stöðuna og átt jákvæð samskipti um áframhaldandi samstarf.

Magnús Geir Þórðarson, nýr útvarpsstjóri.
Magnús Geir Þórðarson, nýr útvarpsstjóri. mbl.is/Þórður
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK