Setja 27% bréfa í HB Granda á markað

HB Grandi verður sett á markað í næsta mánuði.
HB Grandi verður sett á markað í næsta mánuði. Eggert Jóhannesson

Arion Banki, Vogun hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. munu selja þegar útgefna hluti í HB Granda í almennu útboði dagana 7. apríl til 10. apríl, en hluturinn nemur á bilinu 27-32% af heildarbréfum í HB Granda. Verðbil útboðsins verður 26,6 til 32,5 krónur á hlut, en miðað við það er heildarverðmæti félagsins á bilinu 48,5 til 59,2 milljarðar.

Heildarfjöldi útgefinna hluta í HB Granda nemur 1.822.228.000 krónum, en þar af á félagið eigin hluti sem nema 0,47% af heildarfjölda hlutanna. Allir útgefnir hlutir í félaginu eru í sama flokki og jafnréttháir. Hlutir í félaginu eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Stærð útboðsins nemur 27% af útgefnum hlutum, nánar tiltekið 492.001.560 hlutum. Arion banki hf. áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 583.112.960 hluti eða sem samsvarar 32% af áður útgefnu hlutafé.

Á vefsíðu umsjónaraðila útboðsins, www.arionbanki.is, verður tekið við áskriftum frá og með mánudeginum 7. apríl til og með fimmtudeginum 10. apríl. Lágmarksáskrift er að andvirði 100 þúsund krónur. Fjárfestum er boðið upp á tvær áskriftarleiðir, eða svokallaðar tilboðsbækur. Ákvörðun á verði þeirra hluta sem seldir verða í útboðinu verður ekki með sama hætti í báðum tilboðsbókum útboðsins. Í tilboðsbók A óska seljendur eftir áskriftum á verðbilinu 26,6-32,5 krónur á hlut. Eftir lok áskriftartímabilsins munu seljendur ákvarða eitt endanlegt útboðsgengi til allra kaupenda sem þátt tóku í tilboðsbók A, en það mun verða á framangreindu verðbili. Í tilboðsbók B er tekið við áskriftum sem eru að lágmarki á verðinu 26,6 krónur á hlut, en öllum hlutum sem seldir verða í tilboðsbók B verður úthlutað á sama verði, sem verður jafnt eða hærra en endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók A. Gert ráð fyrir að bjóða samtals 8,50% af útgefnum hlutum í tilboðsbók A og 18,50% í tilboðsbók B. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK