Hrein raunávöxtun LSR 6,5%

mbl.is/Styrmir Kári

Hrein raunávöxtun LSR var 6,5% í fyrra en ávöxtun eigna sjóðsins var mjög góð að mati stjórnenda hans. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar LSR síðustu fimm árin er 4,5%, að því er segir í frétt á vef LSR.

Tekjur af fjárfestingarstarfsemi á árinu 2013 voru 46,3 milljarðar króna og heildareignir LSR voru 485 milljarðar króna í árslok 2013.

Undanfarin þrjú ár hafa eignir LSR aukist um 134,8 milljarða króna, en það má að stærstum hluta rekja til ávöxtunar sjóðsins því á sama tíma hafa tekjur af fjárfestingum numið 131,4 milljarði króna.

Verðbréfaeign sjóðsins er vel dreifð í innlend og erlend skuldabréf og hlutabréf, að því er segir í fréttinni. Í árslok 2013 var 55% af eignum sjóðsins í skuldabréfum, þar af 35,2% í skuldabréfum með ríkisábyrgð, 9% í innlendum hlutabréfum, 29,8% í erlendum hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum, 5,4% í innlánum og 0,9% í öðrum fjárfestingum.

Ávöxtun innlendra og erlendra hlutabréfa var góð á árinu. Nafnávöxtun innlends hlutabréfasafns LSR var 30,4% á árinu sem jafngildir 25,8% raunávöxtun. Nafnávöxtun erlendra hlutabréfa og hlutdeildarskírteina var 11,7% á árinu sem jafngildir 7,8% raunávöxtun.

Á árinu 2013 fengu 17.590 sjóðfélagar eða makar þeirra lífeyrisgreiðslur frá sjóðnum, samtals 29,4 milljarða króna. Að meðaltali greiddu 29.491 sjóðfélagi iðgjald til sjóðsins á árinu, samtals að fjárhæð 21,2 milljarði króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK