LSR bætir við hlut sinn í N1

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins. mbl.is/Styrmir Kári

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hefur bætt við hlut sinn í eldsneytisfyrirtækinu N1 en sjóðurinn keypti í dag fimm milljónir hluta fyrir um 87 milljónir króna miðað við gengi bréfa félagsins í dag.

Sjóðurinn á nú 5,2% hlut í N1 en átti fyrir viðskiptin 4,7% hlut, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Þar kemur fram að Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A-deild eigi 3,38% hlut í N1, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins B-deild 1,56% hlut, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins séreign 0,07% hlut og loks Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga 0,19% hlut. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK