Rósa nýr framkvæmdastjóri Sendiráðsins

Rósa Stefánsdóttir
Rósa Stefánsdóttir

Rósa Stefánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri vefstofunnar Sendiráðið. Rósa er menntaður margmiðlunarhönnuður og hefur mikla reynslu á sviði vefþróunar, samfélagsmiðla og markaðssetningar á netinu. Rósa er starfandi formaður Samtaka vefiðnaðarins, SVEF.

Rósa var áður markaðsstjóri rafrænna viðskipta hjá stærstu ferðaskrifstofu landsins, Iceland Travel, og leiddi þar vefdeild fyrirtækisins og rafrænt markaðsstarf. Þar áður starfaði Rósa sem sérfræðingur í netmarkaðssetningu hjá Bláa Lóninu og stýrði endurnýjun á vef Bláa Lónsins, en hann var valinn vefur ársins á Íslensku vefverðlaununum árið 2012. Rósa hefur einnig starfað sem grafískur hönnuður, vefhönnuður og vefstjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK