Valgeir M. Baldursson ráðinn forstjóri Skeljungs

Valgeir Matthías Baldursson.
Valgeir Matthías Baldursson.

Stjórn Skeljungs hefur gengið frá ráðningu Valgeirs M. Baldurssonar, framkvæmdastjóra neytendasviðs félagsins, í stöðu forstjóra.

Valgeir hefur starfað hjá Skeljungi í fimm ár, fyrst sem fjármálastjóri félagsins en síðustu tvö árin á neytendasviði.  Valgeir hefur meðal annars gengt stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs SPRON, ráðgjafa hjá KPMG og verið meðeigandi og framkvæmdastjóri Álits ehf.

Valgeir tekur við starfi forstjóra félagsins þann 9. maí, en fram til þess tíma mun Einar Örn Ólafsson fráfarandi forstjóri, gegna stöðu sinni áfram.  Einar Örn mun svo starfa áfram hjá Skeljungi til 30. maí og sinna tilfallandi verkefnum fyrir félagið eftir það.

„Við erum afar ánægð með að hafa fengið Valgeir til að taka að sér verkefni forstjóra Skeljungs.  Bæði þekkir hann félagið ákaflega vel og þá hefur hann náð góðum árangri í þeim fjölbreyttu verkefnum sem hann hefur sinnt hjá Skeljungi. Við bindum því miklar vonir við að Skeljungur muni eflast enn frekar undir hans stjórn,“ er haft eftir Jóni Diðriki Jónssyni, stjórnarformanni Skeljungs, í fréttatilkynningu.

Valgeir nam viðskipta- og stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og lauk MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík 2007.  Valgeir er kvæntur Vilborgu Eddu Torfadóttur og eiga þau tvær dætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK