Magnús tekur stærsta stökkið í sögu Latabæjar

Magnús Scheving.
Magnús Scheving. mbl.is/Ozzo

Síðustu 20 ár hefur Magnús Scheving verið höfundur og forstjóri Latabæjar en nú er komið að því að íþróttaálfurinn fyrrverandi taki stærsta stökkið í sögu bæjarins. Samningi Magnúsar er að ljúka og hefur hann ákveðið að endurnýja hann ekki og því afhenda keflið yfir til eiganda Latabæjar, alþjóðlegu fjölmiðlasamsteypunnar Turner Broadcasting System. Þeir vilja þó ekki sleppa honum alveg strax og Magnús mun því verða Turner áfram innan handar sem ráðgjafi og sérstakur sendiherra Latabæjar næstu 2-3 árin hið minnsta. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Frá því að Turner keypti fyrirtækið árið 2011 hafa verið framleiddar tvær nýjar sjónvarpsþáttaraðir um Latabæ. Eftir framleiðslu á síðustu seríu var þeim merka áfanga náð að eiga yfir 100 þætti um lífið í Latabæ –  en það er það magn sem þarf til að svara eftirspurn yngstu kynslóðarinnar um ókomna tíð. Ekki verða því not lengur fyrir stúdíóið góða hér á landi sem skilað hefur fyrirtækinu þessum mikla fjársjóði af sjónvarpsefni. Aðkoma Turner hefur skilað 5 milljörðum í erlendum gjaldeyri inn í íslenskt efnahagslíf og yfir 160 ársverk hafa verið sköpuð árlega þessi þrjú ár.

Turner mun frumsýna nýju sjónvarpsþáttaraðirnar á sjónvarpsstöðvum sínum um allan heim í haust. Samhliða ætla þeir sér að stórauka fjárfestingu í leiksýningum og sækja af meiri krafti með Latabæ inn í netheima. Verkefnið verður leitt af skrifstofu Turner í London þar sem haldið er utan um öll alþjóðleg vörumerki samsteypunnar. Í tengslum við þessa breytingu hverfa fimm fastráðnir starfsmenn Latabæjar á braut. Í október síðastliðnum lauk tökum á seinni þáttaröðinni og hvarf þá meirihluti þeirra 160 verktaka sem störfuðu við framleiðsluna til annarra verkefna en 40 unnu við eftirvinnsluna og luku störfum í apríl síðastliðnum. Ísland verður fyrirtækinu áfram mikilvægt og stærsta verkefni ársins hér á landi verður 20 ára afmælissýning Latabæjar í Þjóðleikhúsinu en hátt í 70 manns munu starfa að uppsetningunni.

 „Eftir að ég fór úr búningnum þá hefur hlutverk mitt sem sendiherra fyrir heilbrigðan lífsstíl víðs vegar um heiminn aukist og eftirspurnin eftir mér sem fyrirlesara einnig og ég mun halda því áfram,“ er haft eftir Magnúsi Scheving í fréttatilkynningu. „Þá hef ég einnig hug á að snúa mér að spennandi verkefnum sem ég hef ekki komist í vegna anna síðustu 20 árin.  Ég er stoltur og ánægður með að Latibær sé í höndum eins stærsta afþreyingafyrirtæki heims, Turner sem er hluti af Time Warner samsteypunni. Aðila sem hefur allt sem þarf til að láta Latabæ vaxa og dafna um ókomna framtíð. Ég er jafnframt virkilega spenntur að sjá Latabæ í Þjóðleikhúsinu og það er góð tilfinning að nýjar kynslóðir geti upplifað Latabæ á sviði alveg eins og þegar ævintýrið hófst fyrir 20 árum síðan.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK