Ráðin framkvæmdastjóri VÍB

Elín Jónsdóttir framkvæmdastjóri VÍB
Elín Jónsdóttir framkvæmdastjóri VÍB

Elín Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka og tekur þar með sæti í framkvæmdastjórn Íslandsbanka.

Elín er lögfræðingur að mennt með cand. jur próf frá Háskóla Íslands og LL.M. gráðu frá Duke háskóla í Bandaríkjunum. Hún hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Elín er stjórnarformaður Tryggingarmiðstöðvarinnar og hefur gegnt því starfi frá því 2012. Hún var forstjóri Bankasýslunnar frá 2009 til 2011. Þá var hún framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Arev frá 2005 til 2009 og lögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu frá 2001 til 2005. Þar áður starfaði hún m.a. við lagadeild Duke háskóla, hjá Oz hugbúnaðarfyrirtæki og Héraðsdómi Reykjavíkur.

  Elín hefur setið stjórnum allnokkurra fyrirtækja auk Tryggingarmiðstöðvarinnar og má þar nefna, Icelandair, Promens, Reginn og Eyrir Invest.  Hún hefur ákveðið að hætta í stjórn Icelandair þann 1. ágúst vegna nýja starfsins og tekur Magnús Magnússon, varamaður í stjórn Icelandair, við sæti hennar í stjórninni.

Elín tekur við starfi framkvæmdastjóra VÍB af Stefáni Sigurðssyni sem nýlega var ráðinn forstjóri Vodafone.

Elín Jónsdóttir er gift Magnúsi Gottfreðssyni lækni og eiga þau tvö börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK