Lifandi markaður gjaldþrota

Lifandi markaður hefur verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Staðirnir eru þó …
Lifandi markaður hefur verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Staðirnir eru þó enn opnir. Mynd/Lifandi markaður

Eigendur Lifandi markaðar hafa óskað eftir því að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið rekur þrjár verslanir á höfuðborgarsvæðinu, en þar eru einnig veitingastaðir. Félagið var úrskurðað gjaldþrota 4. júlí og hefur skiptastjóri auglýst eftir kröfum í búið.

Vb.is fjallar um málið, en sjóður í stýringu Auðar Capital var eigandi félagsins. Auður sameinaðist svo Virðingu í byrjun þessa árs. Þá kemur fram að samkvæmt ársreikningum hafi uppsafnað tap síðustu tveggja ára verið rúmlega 90 milljónir og að eigið fé félagsins hafi verið neikvætt um 30 milljónir. 

Haft er eftir Jóhanni H. Hafstein skiptastjóra að ekki sé útilokað að nýir eigendur komi að rekstrinum, en staðirnir þrír eru enn opnir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK