Hlutabréf tryggingafélaga hækka

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands. mbl.is/Ómar

Hlutabréf tryggingafélaganna Sjóvá, TM og VÍS hækkuðu öll í verði í Kauphöllinni í dag. Mest var hækkunin á bréfum TM, eða 2,74%, í 103 milljóna króna viðskiptum. Hlutabréf VÍS hækkuðu um 2,55% í verði í 184 milljóna króna viðskiptum og loks fóru bréf Sjóvá upp um 1,98% í verði í 153 milljóna króna viðskiptum.

Hlutabréf HB Granda lækkuðu hins vegar mest allra félaga, eða um 2,33% í verði í 243 milljóna króna viðskiptum.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði alls um 0,3% í dag í 952 milljóna króna viðskiptum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK