Fyrirvörum aflétt í raforkusölusamningi

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar og Magnús Garðarsson framkvæmdastjóri United Silicon …
Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar og Magnús Garðarsson framkvæmdastjóri United Silicon hf. Ljósmynd/Landsvirkjun

Landsvirkjun og United Silicon hf. tilkynntu í dag að öllum fyrirvörum hafi verið aflétt í raforkusölusamningi sem fyrirtækin undirrituðu í mars síðastliðnum og hann samþykktur af stjórnum beggja félaga. 

Samkvæmt samningnum mun Landsvirkjun útvega rafmagn fyrir kísilmálmverksmiðju sem United Silicon reisir í Helguvík á Suðvesturlandi. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan hefji starfsemi á fyrri helmingi ársins 2016 og noti 35 MW af afli.

Öll skilyrði raforkusölusamningsins hafa verið uppfyllt en hefðbundnir fyrirvarar sneru meðal annars að tilheyrandi leyfisveitingum, raforkuflutningssamningum og fjármögnun.

Fjármögnun verkefnisins er tryggð og verður í höndum Arion banka í formi hefðbundinnar verkefna- og lánsfjármögnunar annars vegar og útgáfu skuldabréfa á innlendum markaði hins vegar.

United Silicon áformar að framkvæmdir við kísilmálmverksmiðjuna hefjist að fullum krafti í júlí mánuði en jarðvegsframkvæmdir eru þegar hafnar á svæðinu. Stefnt er að því að rekstur geti hafist 1. apríl 2016.

Í tilkynningu segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, að síðustu mánuði hafi Landsvirkjun átti í farsælu samtarfi við United Silicon og staðfesting raforkusölusamningsins marki merkan áfanga í uppbyggingu kísilmálmiðnaðar á Íslandi. „Við fögnum þessum tímamótum og auknum fjölbreytileika í stækkandi viðskiptamannahópi okkar. Við erum þess fullviss að kísilmálmframleiðsla á góða framtíðarmöguleika á Íslandi þar sem aðstæður henta iðnaðinum einkar vel. Verkefnið mun styrkja iðnþróun á Íslandi og einnig er jákvætt að hér er komið á uppbyggingu í Helguvík þar sem aðstæður eru góðar fyrir slíka starfsemi.“

Magnús Garðarsson nýráðinn framkvæmdastjóri United Silicon hf. í Helguvík, segir að þetta sér stór í verkefni félagsins, að aflétta öllum fyrirvörum í dag. „Nú erum við  endanlega lagðir af stað með verksmiðju United Silicon í Helguvík, sem hefur verið í undirbúningi undanfarin tvö ár. Með þessu skrefi er fyrirtækið að tryggja að Ísland fái þennan mikilvæga iðnað framtíðarinnar, sem mun flytja inn mikla þekkingu og tækni til landsins. Í samvinnu með evrópskum samstarfsaðilum okkar erum við þannig að tryggja stöðuga atvinnu fyrir margar kynslóðir á Reykjanesi við að framleiða hreinan kísil á Íslandi. Við þökkum lykilaðilum á Íslandi fyrir þann mikla stuðning sem við höfum fundið og þá sérstaklega frá Landsvirkjun og Arion banka, sem hafa veitt verkefninu ómetanlegan stuðning.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK