Ætla að byggja raðhús í Neskaupstað

Neskaupstaður.
Neskaupstaður. mbl.is/Sigurður Bogi

Nýverið var Byggingafélagið Nes ehf. stofnað í Neskaupstað. Stofnendur félagsins eru þrír talsins,   Samvinnufélag útgerðarmanna sem á 80% hlut og Byggingafélögin Nestak og Nípukollur sem eiga 10% hlut hvort. Tilgangur félagsins er fyrst og fremst að standa fyrir byggingu íbúðarhúsnæðis en húsnæðisskortur hefur verið viðvarandi í Neskaupstað að undanförnu og mikil þörf á nýju íbúðarhúsnæði. Hefur félagið að undanförnu haft samráð við bæjaryfirvöld hvað varðar byggingalóðir, segir í fréttatilkynningu.

Samkvæmt tilkynningunni hefur þegar verið tekin ákvörðun um fyrsta verkefni félagsins en það felst í byggingu fjögurra íbúða raðhúss við Sæbakka 25. Íbúðirnar verða 97 fermetrar að stærð auk  26 fermetra bílskúrs . Framkvæmdir við byggingu hússins munu hefjast síðar í sumar en gert er ráð fyrir að þeim ljúki á næsta ári. Fyrirhugað er að selja íbúðirnar á ýmsum byggingastigum, allt eftir óskum væntanlegra kaupenda. Þegar er farið að hyggja að áframhaldandi byggingaframkvæmdum á vegum félagsins, segir í tilkynningunni.

Stjórn þessa nýja félags skipa þeir Magnús Jóhannsson sem er  stjórnarformaður, Róbert Jörgensen og Sigurjón Kristinsson. Framkvæmdastjóri Byggingafélagsins Ness er Freysteinn Bjarnason

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK