Verkföll kostuðu Icelandair 400 milljónir

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Hagnaður félagsins nam 2,6 milljörðum …
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Hagnaður félagsins nam 2,6 milljörðum á öðrum ársfjórðungi. mbl.is/Golli

Hagnaður Icelandair eftir skatta námu 22,4 milljónum Bandaríkjadala á öðrum ársfjórðungi, eða um 2,6 milljörðum króna, miðað við 18,5 milljón dala hagnað árið áður. Félagið telur að beinn kostnaður vegna verkfallsaðgerða flugstétta hafi dregið úr hagnaðinum sem nemur 3,5 milljónum dala, eða rúmlega 400 milljónum.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, að annars hafi starfsemi árshlutans gengið vel. „Vinnudeilur við flugstéttir höfðu áhrif á rekstur annars ársfjórðungs. Vegna kjaradeilna þurfti að fella niður 157 flug og breyta bókunum yfir 22 þúsund farþega. Tekjutap og beinn kostnaður Icelandair Group vegna þessa nam um 3,5 milljónum USD. Hagnaður Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi nam 22,4 milljónum USD og jókst um 3,9 milljónir USD á milli ára.

Þrátt fyrir að afkoma af millilandastarfsemi hafi verið undir væntingum vegna verkfallsaðgerða þá gekk önnur starfsemi samstæðunnar vel. Mikil fjölgun ferðamanna til Íslands skilaði sér í góðri afkomu félaga okkar í ferðatengdri þjónustu. Afkoma í fraktstarfsemi félagsins var góð og jókst á milli ára. Þá hafði bakfærsla á niðurfærslu krafna í leiguflugsstarfsemi félagsins jákvæð áhrif á afkomuna,“ segir Björgólfur.

Hann segir að gert sé ráð fyrir að rekstrarhagnaður ársins fyrir skatta og afskriftir muni nema um 145-150 milljónum dala. „Bókunarstaða í millilandaflugi fyrir komandi mánuði hefur batnað eftir að vinnudeilum lauk og almennar horfur í rekstri samstæðunnar eru góðar. Miðað við núverandi rekstrarforsendur er gert ráð fyrir að EBITDA ársins muni verða á bilinu 145-150 milljónir USD, sem er hækkun frá því sem tilkynnt var um í júní. Betri heimtur krafna í leiguflugstarfsemi vega þungt í hækkuninni,“ segir Björgólfur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK