Bandaríski smásölukeðjan Target hefur valið Brian Cornell sem nýjan forstjóra, en hans bíður það stóra verkefni að taka til í fyrirtækinu eftir að tölvuþrjótar náðu að stela fjölda kreditkortanúmerum í einu stærsta tölvuinnbroti síðari ára.
Cornell tekur við af Gregg Steinhafel fimm mánuðum eftir að upp komst um þjófnaðinn. Talið er að allt að gögnum og kreditkortanúmerum frá um 100 milljón viðskiptavinum hafi verið stolið.
Cornell var áður einn af toppunum hjá Pepsi og þar áður einn af stjórnendum hjá Sam's Club, einingu innan Walmart. Það fyrirtæki er einmitt einn helsti samkeppnisaðili Target vestanhafs.