Fullbókað strax á fyrsta ári

Hótel Laxá í Mývatnssveit.
Hótel Laxá í Mývatnssveit.

Í lok júní var opnað nýtt 80 herbergja hótel í landi Arnarvatns í Mývatnssveit. Aðdragandinn var stuttur, en vegna mikils fjölda ferðamanna á svæðinu hefur nýtingin verið nálægt 100% að sögn hótelstjórans, Margrétar Hólm Valsdóttur. Hún segir árangurinn mjög ánægjulegan, sérstaklega í ljósi þess að þetta sé fyrsta starfsár hótelsins.

Fyrstu gestirnir komu 23. júní, en síðan þá segir Margrét að veðrið hafi leikið við gesti og mikið verið að gera. „Það komu strax bókanir í vetur þegar gefið var út að við myndum opna í sumar,“ segir hún. Aðspurð hvort aðilar hafi ekki verið hikandi að bóka þegar meðgangan var svona stutt segir hún að sumar erlendar ferðaskrifstofur hafi verið stressaðar, en að þær íslensku hafi verið vissar um að verkefnið gengi upp ef það var áform þeirra sem stýrðu framkvæmdinni.

Hún segir að aðilar í ferðaþjónustu í kringum Mývatn tali allir um að það sé aukning í ár og að fréttir um að hleypa hafi þurft ofan í jarðböðin í hollum staðfesti það. Margrét segist hafa nokkrar áhyggjur af þessari hröðu fjölgun og sérstaklega þegar lítið fer í innri uppbyggingu og bætingu ferðamannastaða. „Það er spurning hvenær þetta springur allt í andlitið á okkur,“ segir hún.

Það vantar sárlega fé til uppbyggingar að hennar mati og segir hún að eðlilegt sé að atvinnugrein sem afli mikilla útflutningstekna fái eitthvað til baka til uppbyggingar. Hún segist ekki vera hrifin af því að rukkað sé inn á einstök svæði, en að komugjald eða náttúrupassi geti skilað betri árangri. „Ég hef ekki verið talsmaður þess að rukka á einstök svæði, það er ekki góð leið,“ segir Margrét.

Hótelið notast bæði við bókunarsíður á netinu og samstarf við ferðaskrifstofur. Hún segir að líklega sé hlutfall þeirra sem bóki á netinu og sjái um ferðirnar sjálfir að nálgast 50%, en það sé mjög mismunandi eftir dögum. 

Frá Hótel Laxá við Mývatn.
Frá Hótel Laxá við Mývatn.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK