Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að skýr merki séu um geirasamþjöppun á sviði skuggabankastarfsemi hér á landi. Það geti leitt til aukinnar kerfislægrar áhættu.
Hann segir að sú þróun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum, en mikill vöxtur hefur verið í skuggabankastarfsemi, bæði hér á landi og erlendis, geti haft þann tilgang að komast hjá fjármálaeftirliti. Það skapi ójafnræði á milli þeirra sem eru innan og utan hins formlega bankakerfis og jafnframt „óhefta áhættutöku í hluta fjármálakerfisins“.
Einn viðmælandi ViðskiptaMoggans, sem þekkir vel til innan bankakerfisins, segir í blaðinu í dag, að með nýjum og hertum lausafjárreglum á seinustu árum hafi bankaviðskipti færst í meiri mæli yfir í skuggabankakerfið, sem lýtur ekki eins ströngum reglum.