Þórólfur forstjóri Samgöngustofu

Þórólfur Árnason.
Þórólfur Árnason. mbl.is

Þórólfur Árnason hefur verið skipaður í embætti forstjóra Samgöngustofu og mun hefja störf þann 6. ágúst nk.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, skipaði Þórólf, sem er menntaður rekstrarverkfræðingur, í embættið í samræmi við niðurstöðu hæfisnefndar sem mat hann hæfastan umsækjenda.

Starf forstjóra Samgöngustofu var auglýst í byrjun júní síðastliðnum eftir að Hermann Guðjónsson, fráfarandi forstjóri, hafði óskað eftir lausn frá störfum. Hermann mun áfram sinna ráðgjafastörfum á vegum Samgöngustofu. Alls bárust 24 umsóknir um starfið og það kom í hlut hæfisnefndar að fara yfir umsóknirnar. Sem fyrr segir var Þórólfur metinn hæfastur umsækjenda.

Þórólfur hefur á síðustu árum starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi, verið stjórnarformaður Isavia, unnið að stofnun jarðvarmaklasa með Gekon og sinnt fleiri verkefnum. Þá sinnti hann verkefnastjórn við sameiningu Flugstoða og Keflavíkurflugvallar og við stofnun Isavia árið 2010. Áður hafði Þórólfur verið forstjóri Skýrr, Icelandic Group, Tal og borgarstjóri í Reykjavík á árunum 2003-2004.

Þórólfur lauk M.Sc. prófi í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Hojskole árið 1981 og B.Sc. prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1979. Hann er kvæntur Margréti Baldursdóttur og eiga þau tvö börn.

Samgöngustofa tók til starfa þann 1. júlí 2013 við flutning á stjórnsýslu- og eftirlitsverkefnum Flugmálastjórnar, Siglingastofnunar, Umferðarstofu og Vegagerðar í nýja stofnun sem fer með stjórnsýslu samgöngumála og annast eftirlit með samgöngugreinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK