Iðnaðarrisinn Alstom sér tækifæri á Íslandi

F.v. Kristinn Benediktsson, iðnstýringar- og háspennusvið Ískrafts, Birger Kluge, sölu- …
F.v. Kristinn Benediktsson, iðnstýringar- og háspennusvið Ískrafts, Birger Kluge, sölu- og útboðsstjóri Alstom, Reinhard Bahrke, svæðisstjóri Alstom, Jón Sverrir Sverrisson, framkvæmdarstjóri Ískrafts, og Verner Zmoos, rekstrarstjóri Alstom.

Franski iðnaðarrisinn Alstom hefur samið við íslenska rafvörufyrirtækið Ískraft um milligöngu við sölu á framleiðsluvörum fyrirtækisins hingað til lands. Aðallega verður um að ræða háspennuefni ýmis konar, spenna og tengivirki en Alstom er eitt stærsta iðnaðarfyrirtæki heims á sínu sviði og framleiðir allt frá hraðlestum og vindmyllum til kjarnorkuvera og jarðvarmavirkjana.

Sjá fyrir fjölmörg orkuverkefni á Íslandi

Að sögn Jón Sverris Sverrissonar, framkvæmdastjóra Ískraft, líta stjórnendur Alstom meðal annars til þess að framundan séu fjölmörg verkefni í orkufrekum iðnaði á Íslandi. Einnig eru fyrirsjáanleg nokkur verkefni til styrkingar á raforkukerfi Íslands. „Alstom er  risi á þessum markaði og þetta gerir okkur kleift að bjóða í enn stærri verkefni fyrir aðila eins og Landsnet, Landsvirkjun, Rarik og í raun alla orkufreka starfsemi.“

Alstom samþykkti nýlega yfirtökutilboð General Electric, sem hafði betur eftir mikla keppni við Siemens AG. Málið kom meðal annars til kasta Frakklandsforseta en Alstom er einn stærsti vinnuveitandi í Frakklandi en um 96 þúsund manns vinna hjá þeim á heimsvísu. Yfirtökutilboð General Electric nemur 16,9 milljörðum bandaríkjadala en ársvelta Alstom er í kringum 28,5  milljarða bandaríkjadala.

Ískraft er einn af stærri aðilum á rafvörumarkaði hér á landi en velta fyrirtækisins nam  tæpum tveimur milljörðum  í fyrra. Fyrirtækið var stofnað árið 1975 og starfsmenn eru 26 talsins. Fyrirtækið er með starfsemi á fimm stöðum um landið.

Kísilver, vindmyllur, olíuvinnsla og sæstrengir

Ískraft er í eigu Húsasmiðjunnar og forstjóri hennar Árni Stefánsson segir að samningurinn við Alstom sé mikilvægur liður í að styrkja þennan hluta reksturs samstæðunnar. „Þetta kemur á góðum tíma. Við sjáum að það eru fleiri stór verkefni að færast af teikniborðinu og yfir á framkvæmdastig, svo sem kísilver og þegir hort er til framtíðar eru ýmsir hlutir á umræðu- og rannsóknarstigi eins og vindmyllur, olíuvinnsla, sæstrengir og fleira sem kallar á aukna sérhæfingu birgja hér á landi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK