Valinn fremstur á sviði eignastýringar

MP banki.
MP banki. mbl.is/Arnaldur

Breska fjármálatímaritið World Finance hefur valið MP banka fremstan í flokki á sviði eignastýringar á Íslandi 2014. World Finance útnefnir árlega fyrirtæki fyrir framúrskarandi árangur og í ár hlaut MP banki viðurkenningu sem „Best Investment Management Company“ á Íslandi.

„Við erum mjög ánægð með viðurkenninguna og stolt af þeim árangri sem við höfum náð. Eignastýring hefur allt frá stofnun MP banka verið ein af meginstoðum í starfsemi bankans og við höfum unnið markvisst að því að byggja sviðið enn frekar upp með góðum árangri,“ er haft eftir Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra eignastýringar MP banka, í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK