Óbreyttir vextir í 21 mánuð

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Það þýðir að stýri­vext­ir bank­ans verða áfram 6%.  Vext­ir hafa verið óbreytt­ir allt frá því í nóv­em­ber 2012.

Efnahagshorfur til næstu þriggja ára eru samkvæmt nýrri spá Seðlabankans sem birtist í dag í stórum dráttum svipaðar og spáð var í maíhefti Peningamála. Horfur eru þó á að vöxtur innlendrar eftirspurnar verði ívið meiri í ár og út spátímann, segir í tilkynningu frá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.

„Verðbólguhorfur hafa heldur batnað frá maíspánni og útlit er fyrir að verðbólga verði nálægt markmiði á spátímanum. Framleiðsluspenna myndast seinna og verður ekki eins mikil og í síðustu spá. Verðbólguvæntingar hafa lítið breyst að undanförnu og eru enn yfir markmiði ef horft er til lengri tíma.

Gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans undanfarið ár hafa stuðlað að auknum stöðugleika krónunnar. Á þessu ári hefur bankinn keypt gjaldeyri verulega umfram það sem hann hefur selt bæði í reglulegum kaupum og óreglulegum viðskiptum. Stefnt er að því að regluleg kaup haldi áfram í núverandi umfangi svo lengi sem aðstæður breytast ekki umtalsvert. Eftir sem áður mun Seðlabankinn beita óreglulegum viðskiptum í því skyni að draga úr sveiflum í gengi krónunnar.

Slakinn í taumhaldi peningastefnunnar er líklega horfinn og miðað við grunnspá bankans er útlit fyrir að núverandi vaxtastig dugi til að halda verðbólgu í markmiði. Kröftugur vöxtur innlendrar eftirspurnar á komandi misserum og vaxandi spenna á vinnumarkaði gætu þó leitt til aukins verðbólguþrýstings og orðið til þess að nafnvextir Seðlabankans þyrftu að hækka frekar,“ segir í tilkynningu.

Vextir Seðlabanka Íslands verða samkvæmt þessu sem hér segir:

Daglán: 7,00%

7 daga veðlán: 6,0%

Viðskiptareikningar: 5,0%
7 daga bundin innlán: 5,25%

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK