Bréf Vodafone falla eftir uppgjör

mbl.is/Ómar

Hlutabréf Vodafone hafa fallið um 2,55% í verði í Kauphöllinni það sem af er degi. Velta með hlutabréfin nemur tæpum hundrað milljónum króna. Félagið birti uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung eftir lokun markaða í gær.

Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 210 millj­ón­um króna og jókst um 1% frá fyrra ári. Tekjur þess juk­ust jafn­framt um 1% á árs­fjórðung­in­um en 2% á fyrstu sex mánuðum árs­ins. Hagnaðar­aukn­ing­in á fyrri helm­ingi árs­ins var 49%.

Sjá frétt mbl.is: Hagnaður Vodafone 210 milljónir

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK