Gert að greiða 16,7 milljarða dala

Bank of America greiðir 16,7 milljarða Bandaríkjadala í stjórnvaldssekt.
Bank of America greiðir 16,7 milljarða Bandaríkjadala í stjórnvaldssekt. Mynd/AFP

Bandaríski bankinn Bank of America hefur samþykkt að greiða 16,7 milljarða Bandaríkjadala í stjórnvaldssekt fyrir að hafa afvegaleitt yfirvöld sem rannsökuðu gæði fjármálavafninga sem bankinn seldi. 

Rannsóknin beindist að fyrirtækinu Countrywide Financial, sem var einn stærsti lánveitandinn í Bandaríkjunum þegar kreppan skall á. Fjármálafyrirtækið Merryll Lynch seldi einnig fjárfestum húsnæðislán sín án þess að útskýra þó fyrir þeim áhættuna sem fólgin var í þeim. Bæði þessi fyrirtæki enduðu svo í eigu Bank of America í kjölfar hrunsins og er það því bankinn sem greiðir sektina. 

Tony West, aðstoðarsaksóknari í málinu lýsti því svo fyrir fjölmiðlum: „Þetta er eins og að fara út í búð til þess að kaupa mjólk sem auglýst er fersk og góð, en það sem þú veist ekki er að mjólkin er búin að standa ókæld í heilan dag. Síðan kemur þú heim til þín og kemst að því að mjólkin er súr.“

„Þetta gerðist hjá öllum þeim sem keyptu þessi lán, margir fjárfestar og lífeyrissjóðir. Allt í einu sátu þeir uppi með milljarða tap, þegar lánin voru ónýt,“ segir West.

Sektin sem bankinn greiðir, leiðir til þess að hagnaður bankans á öðrum ársfjórðungi minnkar töluvert, niður í 5,3 milljarða Bandaríkjadala. 

Sjá frétt BBC

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK