Áhugasamir um rekstur í flugstöðinni

Horft yfir brottfararsalinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík.
Horft yfir brottfararsalinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík. mbl.is/Sigurgeir

Fjöldi umsókna barst í forvali Isavia vegna aðstöðu til verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að mati umsóknanna eftir ítarlegu og fastmótuðu ferli. Öllum umsóknum hefur verið svarað og framundan eru samningaviðræður við þá rekstraraðila sem báru af í mati umsókna, að því er segir í tilkynningu frá Isavia.

Samningstími núverandi rekstraraðila rennur út í árslok og gert er ráð fyrir að endurnýjað verslunarsvæði verði tekið í notkun vorið 2015.

Samhliða vali á rekstraraðilum verður ráðist í breytingar á brottfararsal flugstöðvarinnar og endurskipulagningu þjónustunnar. Vegna breyttrar farþegaskiptingar og mikillar aukningar erlendra ferðamanna verður íslensk náttúra og menning höfð að leiðarljósi við endurskipulagningu og hönnun, segir í tilkynningunni.

Rannsóknir sýni að hönnun verslunarsvæðis, framboð verslana og veitingastaða hafi mikil áhrif á ánægju og heildarupplifun farþega af flugvellinum. Mikil áhersla hafi því verið lögð á það í mati umsókna hvernig umsækjendur hyggjast uppfylla kröfur um þjónustu og hvernig þeir sjái fyrir sér að falla að því þema sem lagt verður upp með við endurskipan svæðisins.

Val á rekstraraðilum fer fram í samvinnu við breska ráðgjafarfyrirtækið Concession Planning International og er unnið eftir alþjóðlegri fyrirmynd.

Næstu skref eru, sem fyrr segir, samningaviðræður við þá rekstraraðila sem komu best út úr mati umsókna í hverjum vöruflokki. Gert er ráð fyrir að  viðræður hefjist við einstaka aðila í lok ágústmánaðar og að þeim ljúki í byrjun nóvember. Isavia gætir trúnaðar um alla umsækjendur en að loknu samningaferlinu verða gefin upp nöfn þeirra aðila sem samið verður við.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK