Áhugi á að hefja kavíarframleiðslu

Kavíar.
Kavíar.

Fyrirtækið Stolt Sea Farm hefur áhuga á að setja upp fiskeldi með kavíarframleiðslu í Hrunamannahreppi, á Flúðum eða í sveitinni í kring. Halldór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stolt Sea Farm, segir í samtali við fréttavefinn Sunnlenska að fyrst og fremst sé verið að leita að stað með góðu aðgengi að volgu vatni.

Fyrirtækið hefur sent erindi til sveitarstjórnar Hrunamannahrepps um kavíarframleiðslu. Í fréttinni segir að fyrirtækið sé með 22 þúsund fermetra aðstöðu á Reykjanesi þar sem það framleiðir um 500 tonn af flúru á ári í fiskeldi.

„Það er verið að skoða þá staði sem koma helst til greina, en ekki komin niðurstaða í það enn þá. En gott aðgengi að talsverðu magni af volgu vatni er það sem skiptir mestu máli í því sambandi,“ segir Ragnar Magnússon, oddviti Hrunamannahrepps, í samtali við Sunnlensku.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK