Undirrita samninga við Hong Kong

Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra Íslands í París og Linda Lai, efnahags- …
Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra Íslands í París og Linda Lai, efnahags- og viðskiptafulltrúi Hong Kong gagnvart Evrópusambandinu, handsala upplýsingaskiptasamninginn. Af vef fjármálaráðuneytisins

Norrænu ríkin Ísland, Danmörk, Færeyjar, Grænland, Noregur og Svíþjóð undirrituðu í dag tvíhliða samninga um upplýsingaskipti í skattamálum við Hong Kong í Kína. Samningarnir voru undirritaðir í sendiráði Íslands í París.

Frá árinu 2007 hefur á vegum norrænu ráðherranefndarinnar starfað norrænn stýrihópur sem vinnur að gerð upplýsingaskiptasamninga í skattamálum við bankaleyndar- og lágskattaríki. Með samningunum sem nú eru í höfn við Hong Kong hafa 44 upplýsingaskiptasamningar verið gerðir frá því að verkefnið hófst. Samningarnir við Hong Kong heimila skattyfirvöldum í Hong Kong og á Norðurlöndunum að óska eftir og taka við skattupplýsingum um fyrirtæki og einstaklinga í löndunum. 

Á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins segir jafnframt að Norðurlöndin og Hong Kong skuldbindi sig til þess að fylgja skilyrðum Global Forum um gagnsæi og upplýsingaskipti og til að berjast gegn skattaundanskotum á heimsvísu.  

Allir samningarnir eru tvíhliða og koma til framkvæmda þegar stjórnvöld beggja ríkja hafa fullgilt þá samkvæmt innlendum rétti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK